Myndarlegar verðandi húsmæður!
blogg
02.04.2008 18:01:00 / Húsmóðir

5.apríl - út að borða, leikhúsferð og djamm :)

Sæælar!
Ætla að henda inn smá plani hvernig laugardagurinn verður! 

 Allar mæta stundvíslega kl 18:00 á Hornið (sem er staðsett beint f. aftan Bæjarins bestu niðrí bæ)
Pöntum okkur mat, í boði er hlaðborð með pizzum, pasta og einhverju góðmeti!
Í kringum hálf átta verðum við að vera búnar með matinn, eða allavega borða síðasta bitann þá því þá þurfum við að fara að koma okkur í Þjóðleikhúsið.
Kl. 20:00 byrjar svo Sólarferðin 
Býst við að sýningin taki um tvo tíma, þannig að um 22 leytið getum við farið að rölta til Elínar (sem býr bara downtown) og hellt einhverju gómsætu í okkur hvort sem það er áfengt eða óáfengt :)
Það yrði gaman að gera eins og síðast - ákveða einn stað þar sem við hittumst allar eftir partýið een það er seinni tíma vandamál sem við ræðum um í partýinu ;)

Einhverjar spurningar?

Svo allar viti það þá er enginn eftirréttur á Horninu, en við fáum okkur þá bara eitthvað í leikhúsinu. Það þýðir að allar eiga 1000 kr. í afgang og við ákváðum allar saman (eða þær sem voru allavega mættar) að nota þann pening (sem er þá 23000 kr.) í smá áfengi, nammi, snakk og gos.
Við búumst sterklega við því að það verði einhver afgangs peningur af 23000 kr. en þá kom Alma með þá hugmynd að geyma þann pening þangað til í lok annar og nota hann í gjafir handa kennurum :)
Skiljiði??

Hlakka til á laugardaginn, þetta verður stuuuð! :)
-Auður-


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.03.2008 12:01:14 / Húsmóðir

Skóli á morgun

Jæja, þá er páskafríið á enda og skóli á morgun. Þið sjáið mig líklegast ekki samt, þar sem litli guttinn er lasinn, kem vonandi á fimmtudaginn :)

Hvernig hafið þið að annars???...eigum við ekki að reyna að halda síðunni gangandi....:)

kv Helga

» 2 hafa sagt sína skoðun

04.03.2008 23:45:49 / Húsmóðir

Borga borga borga!

Hæhæ!
Ég veit það kíkja ósköööp fáir hingað inn.. een ef einhver er svo óheppinn að hafa týnt miðanum  sem ég lét flesta  fá í dag með reikningsnr. og því og ákveður að kíkja hingað inn þá er það:
546-26-4937 og kennitala 200788-2659
Heildarverðið er 4500 kr!

 

Muna að leggja inn fyrir föstudaginn 7.mars, því lengur sem þið eruð að borga því meira seinkar ykkur að fá peysurnar og svuntuna! :) Semsagt við förum ekki að sækja neitt fyrr en allur peningur er kominn í hús! ;)

Kveðja Auður


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.02.2008 23:12:05 / Húsmóðir

Smá update!

Allir að taka frá laugardaginn 5.apríl því þá erum við að fara á leiksýninguna Sólarferðin!
Við fáum miðann á 1500 kall (sem er ekki neitt) oog eigum þá semsagt 3500 kr. í afgang sem við notum til að kaupa okkur mat :)
Þá er bara spurningin, hvert viljiði fara að borða?? Eitthvað sem er í göngufæri frá Þjóðleikhúsinu og það eru alveg milljón góðir staðir niðrí bæ svoleiðis að það ætti ekki að vera erfitt að finna einn!
Okei, það er þá klappað og klárt :)

Peysumál.. við erum að vinna í þessu! Hugmyndin er Svört hettupeysa(sem flestir eru búnir að máta ) með logoið á öðru hvoru brjósti (bara lítið) og svo einhver góð setning á bakinu í skærbleikum stöfum! Það sem við ALLAR þurfum að gera núna er að leggja höfuðið í bleyti og finna einhverja töff setningu á bakið. Eitthvað svipað og "hvað ertu með á prjónunum" eða eitthvað sem er ekki of hallærislegt að við getum ekki notað peysuna í framtíðinni;) hehe
Ef við finnum enga setningu, þá verður ekkert úr þessum peysum! ;)

Eitt annað.. mörgum langar líka í svuntu, sem við merkjum og það er mjög eigulegt! Eru margar sem vilja alls ekki svuntu??
Þetta yrði e-ð um 4500 kr. allt samtals (peysa+svunta)! er það of mikið?
Segið hvað ykkur finnst, þið eruð ekki nógu duglegar að því í skólanum ;)

Kv. Nefndin!


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.02.2008 21:06:10 / Húsmóðir

18. febrúar

Sælar! 

Keila mán. 18.feb kl 20:30

Mundiru mæta?! 


» 10 hafa sagt sína skoðun

11.02.2008 17:29:52 / Húsmóðir

Leikhús og fleira :)

Sælar stúlkur :D

Við skemmtinefndin héldum þennan fína fund í dag :D hahaha :D svakalega formlegur þar sem áform um leikhúsferð og fleira var rætt.

Auður ætlaði að tékka á Þjóðleikhúsinu í dag en ég tékkaði á Borgarleikhúsinu um helgina og þar eru 2 sýningar sem koma til greina en þær eru "Lík í óskilum" og " Jesus Christ Superstar".  Planið er bara að kjósa um þetta á morgun og þá verða líklegast komin fleiri leikrit úr Þjóðleikhúsinu. :P

Síðan ætlum við að fá prufupeysur svo allir geti mátað og fundið sína stærð og vonandi koma einhverjar peysur í vikunni upp í skóla :)

Keilumál... Við ætlum að sjá hvort það sé einhver stemning fyrir keilu jafn  vel annað kvöld (þriðjudag) og þá gætum við hringt á morgun og reynt að panta brautir :)

 Annars fer þetta líka allt eftir því hvað þið viljið gera og hvort það er áhugi fyrir einhverju skemmtilegu.  Ég veit líka að Thelma og fleiri eru eitthvað að spá í Tupperware kynningu og endilega láta okkur vita þegar eitthvað kemur í ljós með það :D

Jæja þá er allavega komið smá update á síðuna hvað varðar þessi mál :D Endilega vera svo bara duglegar að koma með uppástungur.  Partýhald var eitthvað rætt í handavinnuhópnum í dag þannig að þetta verður bara algjör stuuð önn ;)

Bingóið var líka roosa gaman og við verðum að fara aftur þangað og þá vonandi fjölmennari hópur :D

en ég bið að heilsa ykkur í bili, vona að þið hafið nennt að lesa þennan pistil minn :D

kv. Dagný :D


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.02.2008 20:22:56 / Húsmóðir

Jæææja!

Sælar dömur!

Eins og María sagði hér fyrir neðan þá var kosið í "skemmtinefnd" í gær og ég, María og Dagný bárum sigur úr býtum ;)

Þetta eru semsagt klikkhausarnir sem þið völduð í nefndina, allar ljóshærðar.. hmm það er spes!;) 

Við skulum reyna að vera eins duglegar og við getum en munið að engin af okkur bauð sig fram, svoleiðis að við þurfum kannski aðeins að fara að kúpla okkur inn í skemmtanagírinn.. skiljiði!;) hehehe

En það kom ein hugmynd í gær í elhúsinu, þar sem við erum mikið að nota "töppever" ..

..Þetta er semsagt "töppever"  ef þið vissuð það ekki ;)
við sem erum í eldhúsinu erum búnar að sjá að þetta er aaalveg ómissandi í eldhúsið oog gott þegar maður fer nú að búa! hehe
Svoleiðis að okkur fannst sniðugt að reyna að plögga töppever kynningu eitt kvöldið! Það yrði bara haldið uppí skóla, eitt virkt kvöld í vikunni sem flestar eru lausar og við myndum kannski baka eitthvað gúmmulaði til að narta í og gera gott kvöld úr þessu :)
Hvernig lýst ykkur á??
Margrét er búin að gefa grænt ljós á að halda svona inn í skóla, oog hún sagði að hún þyrfti endilega að kaupa sér nokkur ísform og box í viðbót fyrir skólann! ;)
Jæja farin að baka muffins!
Sjáumst á morgun
Auður

» 11 hafa sagt sína skoðun

06.02.2008 20:03:01 / Húsmóðir

Lopapeysa

Halló kalló

Ég ákvað að drita einni færslu þar sem ég var að kaupa efnið í peysuna í dag... Ég, Alma og Helga hittumst þar og vorum aðeins að skoða. Dúllan hennar Helgu hún Viktoría kom með, ekkert smá bleik og sæt!;) Við fórum allaleið uppí mosó, ég hélt ég yrði 2 daga að keyra þangað og heim aftur.. shiiit.. Vorkenni Maríönnu ekkert lítið að eiga kall þarna....

En eitt, núna er ég æst í að byrja að fitja upp á peysuna, hér koma nokkrar spurningar vantar mega svör!

* Skiptir það máli hvar maður byrjar?
* Hvað á að fitja upp margar lykkjur?
* Er það misjafnt eftir peysum kannski?
* Ég veit ekki hvort ég skilji leiðbeiningarnar mínar....
* Er ég vitlaus?

Písendlov, Gunnþórunn

ps. djöfull var maturinn góður í dag... Eva, þú misstir af miklu!
ps.2.sorry María ef ég skyggði á þína færslu... obbobbobb

» 11 hafa sagt sína skoðun

06.02.2008 19:35:29 / Húsmóðir

Myndir og skemmtinefnd :)

Jæja sælar!

 

Þá er búið að kjósa í þessa svokölluðu "skemmtinefnd". Valdar voru Auður, Dagný og ég(María Védís). Reynum við að gera okkar besta til að koma öllu á framfæri, taka við hugmyndum, finna eitthvað skemmtilegt að gera, framkvæma hugmyndir og vera ofurhressar hjéhjé :haha:

En annað sem mig langaði að segja að ég set alltaf öðruhvoru myndir úr Húsó inná myspaceið mitt!!

 http://www.myspace.com/tritillinn

Komið með hugmyndir til að gera skólavistina okkar þennan stutta tíma sem skemmtilegasta og minnistæðasta

 

Ykkar María Védís(mæja) ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.02.2008 15:50:44 / Húsmóðir

bakarar

Bakarar í síðustu viku óskast :)
man ekki alveg hverjar voru, minnir að Harpa hafi búið til, en mig vantar eiginlega uppskriftina af súrmjólkurbúðingnum??? og sósunni
er möguleiki að einhver sé með bókina sína heima og geti sett þetta inn?? 

 kv Helga sælkeri :Þ


» 8 hafa sagt sína skoðun

01.02.2008 14:08:22 / Húsmóðir

Heimalærdómur :)

Sælar stúlkur og takk kærlega fyrir hádegisverðinn :D Þetta var voða góð tilbreyting og gaman að spjalla.. hahaha.. eins og við gerum nú ekki mikið af því í skólanum :D

 En heyrðu við vorum nokkrar að ræða að fara jafnvel niður í skóla á sunnudaginn og sauma saman :D Koma bara með eitthvað gott að borða og hlusta á music, spjalla :)  Bara svona um 2 leytið eða eitthvað álíka!

 Þannig að endilega ef þið eigið mikið eftir að sauma, endilega koma! miklu auðveldara þegar maður er í hóp :D þá getum við líka hjálpað hvor annarri ;)

En já vonnandi nennum við að koma sem flestar og ljúka þessum heimaverkefnum :)

 kv. Dagný :)


» 9 hafa sagt sína skoðun

31.01.2008 23:44:58 / Húsmóðir

keila, einhver?

Sælar dömur:):)

Þar sem að ég og Ída fórum af keilubrautinni seinast með sárt ennið og báðar með stig undir 100 þá höfurm við ákveðið að endurtaka leikinn núna á fimmtudaginn 7 febrúar um 8 eða 9 leitið og vorum við að spá í að hafa þetta aðeins fjölmennara í þetta skiptið og vorum að velta fyrir okkur hvort að þið væruð ekki til í einn leik eða svo.

En endilega kommentið og látið vita hvort að þetta er eikkað sem að þið eruð til í að gera því að ef við förum margar þá þarf að hringja og panta brautir.  Ekkert gaman að mæta á svæðið og þurfa að bíða í klukkutíma eftir braut eða hvað?

Hvetjum allar til að sýna þessu áhuga og sinna þessari íþrótt, er ekki margrét ekki líka alltaf að hvetja okkur til að hreyfa okkur meira:!:

Svanhildur kveður í bili .  :haha:

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

30.01.2008 18:41:20 / Húsmóðir

bInGo?

 
 
:D
Bingó í Vinabæ í kvöld
 
kl.20:03
:D

» 4 hafa sagt sína skoðun

29.01.2008 19:42:04 / Húsmóðir

Neyðarástand!

Þar sem ég hlammaði mér niður hér heima í góðu saumastuði, áttaði ég mig á því að ég veit ekki hvað á að nota marga þræði í að sauma út í vasann á skokknum !?

Vona að einhver svari sem fyrst svo ég geti farið að vinna á heimaverkefnaHRÚGUNNI sem fyrst !!

Svo er hér video tileinkað henni Helgu, saumastofulagið góða:


;)

Kveðja Íris Sif

P.s. sendi veikum gellum batnaðarkveðjur!

» 11 hafa sagt sína skoðun

27.01.2008 20:34:56 / Húsmóðir

Hæ hæ

Jæja komin heim eftir leiðinda ferðalag,var föst á vellinum frá kl 5.30 um morguninn til 9 um kvöldið á föstudaginn:/ plús meiri erfiðleikar þegar ég var komin til Osló,aldrei upplifað annað eins!!Enn kláraði þó koddaverið,enn mátti nátturulega ekki hafa skæri svo það er smá skrautlegt,komst ekkert í að prjóna,svo ég á enn einn sokk eftir,ekki samt að nenna fara prjóna núna...Sé ykkur svo á mánudag,þriðjudag,ekki gera neitt of skemmtilegt þangað til;) BÆbb Eva

» 8 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
RSS tengill